300 KLST. JÓGAKENNARANÁM / Level 2
2026-2027
Þú ert ekki að byrja.
Þú ert að halda áfram.
Þú hefur lokið 200 klst. grunninum.
Þú kannt flæðið. Þú kannt grunninn.
Við byrjum þar sem þú endaðir — og förum dýpra.
Þetta er leiðtoganám
-
Þetta nám er ekki bara næsta stig í kennaranámi.
Þetta er leiðtogaprógram fyrir þá sem vilja standa sterkari í eigin rödd, nærveru og áhrifum. -
Vð lok náms getur þú sótt um 500 klst. réttindi hjá International Yoga Alliance. Þessar klukkustundir skipta máli — en þær eru ekki kjarninn.
-
Kjarninn er þessi: Að verða manneskja sem ekki bara kennir — heldur leiðir.
Aðferðafræðin
-
Námið byggir á dýpkun (Mastery) í Baptiste Power Yoga aðferðafræðinni:
Æfingar og verkfæri Baptiste Yoga:
• Asana: sem leið að krafti, lífsorku og frelsi
• Hugleiðsla: sem leið til nærveru og vakningar
• Sjálfsskoðun: sem leið til sjálfsuppgötvunar og nýrra möguleika
Fyrir hverja er námið?
-
Fyrir þá sem vilja meira en bara „næsta námskeið“
-
Fyrir kennara og leiðtoga sem vilja dýpka áhrif sín í salnum
-
Fyrir þá sem vilja efla leiðtogahæfileika sína
-
Fyrir þá sem eru tilbúnir fyrir raunverulega umbreytingu — í kennslu og eigin lífi
Uppbygging & dagsetningar
Námið samanstendur af 9 staðarlotum (fim-sun),
1 "immersion" helgi, og svo Zoom fundum þar á milli.
Helgar (staðarlotur)
1. helgi: 15.–18. október 2026
2. helgi: 12.–15. nóvember 2026
3. helgi: 3.–6. desember 2026
4. helgi: 14.–17. janúar 2027
5. helgi: 11.–14. febrúar 2027
6. helgi – IMMERSION: 11.–14. mars 2027
7. helgi: 8.–11. apríl 2027
8. helgi: 29. apríl – 2. maí 2027
9. helgi (lokahelgi): 20.–23. maí 2027
Tímasetningar
-
Fimmtudagar: 18:00–21:00
-
Föstudagar: 16:30–21:00
-
Laugardagar: 08:00–18:00
-
Sunnudagar: 08:00–17:00
Immersion helgi (dýpkun)
-
11–14 mars 2027
-
Djúp iðkun
-
Sjálfsskoðun
-
Áhersla á tengingu og umbreytingu
-
Þessi helgi verður hjarta námsins
Tímasetningar (immersion helgi)
-
Fimmtudagur: 18:00–21:00
-
Föstudagur: 08:00–21:00
-
Laugardagur: 08:00–21:00
-
Sunnudagur: 08:00–17:00
Zoom fundir (á milli helga)
Tímasetning: 18:00–20:30 (2,5 klst.)
-
Zoom: 29. október 2026
-
Zoom: 26. nóvember 2026
-
Zoom: 17. desember 2026
-
Zoom: 28. janúar 2027
-
Zoom: 25. febrúar 2027
-
Zoom: 18. mars 2027
-
Zoom: 20. apríl 2027
-
Zoom: 13. maí 2027
Kennarar
-
Lead Trainer: Inga Hrönn Kristjánsdóttir
-
Co-Lead: Alice Riccardi
-
Gestakennari: Elina Iso-Rautio
-
Aðrir gestafyrirlesarar yfir námstímann
Námslýsing / Það sem þú lærir
Jóga verkfæri, heimspeki & aðferðafræði
• Mastery í Baptiste aðferðafræðinni
• Hugleiðsla sem leið til nærveru og vakningar
• Asana sem leið að krafti, lífsorku og frelsi
• Sjálfsskoðun (Inquiry) sem leið að nýjum möguleikum
• Jóga í daglegu lífi
• Að kenna af tilgangi
• Að skapa þinn eigin „Way of Being“
• Núvitund
• Kynning á Yoga Sutras
Líffærafræði, hreyfifræði & hagnýt hreyfing
• Líffærafræði í jóga
• Stöðugleiki og hreyfanleiki liða
• Fagurfræði vs. skynsamleg uppstilling
• Vöðvavirkni vs. bandvefur
• Aðlögun og meiðslaforvarnir
Kennsla & verkleg þjálfun (Practicum)
• Að kenna mismunandi lengd og form kennslustunda
• Að taka við og vinna með endurgjöf
• Kennsla í mismunandi sniðum (vinnustofur, einkatímar, viðburðir)
• Handleiðsla og coaching
• Að „workshoppa“ stöður í tímum
• Grunnur vs. all-levels kennsla
Fagmennska & leiðtogahæfni
• Röddin sem verkfæri: styrkur, skýrleiki og áhrif
• Að vinna með mótstöðu og óþægindi
• Að skapa áhrif í samfélaginu
• Skýr og áhrifarík samskipti
• Mörk og fagmennska
• Samþætting og Mastery (meistaratækni)
• Að umbreyta hugmynd í upplifun og raunverulega reynslu
• Kennsla sem framlenging af því hver þú ert
• Að skapa stöðugleika og aga
• Að móta þinn einstaka kennslustíl
• Að vera bæði kennari og leiðtogi — í salnum og í lífinu
Sérhæfingar
• Yin Yoga (framhald): að finna þinn eigin stíl og dýpri nálgun
• Að leiða hugleiðslu
• Að leiða Öndun/Pranayama
• Að leiða sjálfsskoðun
• Art of Assisting (framhald): samskipti án orða
Innifalið
-
Allar staðarlotur (9 helgar) með leiðsögn og kennslu
-
Allir Zoom fundir á milli helga
-
Dýpkunarhelgi (kennsluhluti og dagskrá í Skálholti)
-
Gisting og matur í Skálholti
-
Kennsluefni og aðgangur að efni á meðan á náminu stendur (að undanskildum bókum, sem eru keyptar á eigin vegum)
-
Handleiðsla, endurgjöf og stuðningur í gegnum allt ferlið
-
Practice teaching og raunveruleg kennsluþjálfun
-
3 einstaklings coaching tímar með kennara
-
Aðgangur að samfélagi og tengslamyndun innan hópsins
-
Vottun frá International Yoga Alliance að loknu námi (300 klst. RYT)
Verð & greiðslur
-
Fullt verð: 890.000 kr.
-
Early Bird / skráning fyrir 15. júlí: 790.000 kr.
-
Útskriftarnemar úr 200 klst. jógakennaranámi Iceland Power Yoga fá 15% afslátt → 756.500 kr.
-
Greiðsludreifing í boði (12 / 6 / 2 greiðslur)
-
Staðfestingargjald til að tryggja plássið: 100.000 kr.
Kröfur
-
Lokið 200 klst. jógakennaranámi
-
Skuldbinding að mæta allar helgar og á alla Zoom fundi
-
Vilji til að mæta og taka þátt af heilindum
Af hverju að skrá sig?
-
Þetta snýst ekki bara um að verða „betri kennari“.
-
Þetta snýst um að:
-
standa örugg/ur í eigin skinni og með eigin rödd
-
leiða af skýrleika og ábyrgð
-
skapa raunveruleg áhrif í eigin líf sem og lífi annarra
-
velja að stíga inn í þinn eigin kraft sem leiðtogi.
-
Skráning
-
Fylltu út umsóknina hér fyrir neðan og við munum hafa samband og bóka þig í viðtal
-
Takmarkað pláss.


)_edited.png)