Tímabili: 22. október - 8. nóvember (6 skipti)
Þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 19:30 - 20:45
Ertu að byrja eða nýlega byrjaður/byrjuð í jóga og langar að tileinka þér áreiðanlegan og sterkan grunn? Á þessu námskeiði ætlum við að brjóta niður Journey into Power seríuna og stöðurnar sem við gerum í Baptiste Power Yoga. Við förum yfir lykil-grunnatriðin og líkamleg lögmál sem viðhalda góðri heilsu til langs tíma frekar en skammtíma árangri.
Stöðurnar í seríunni eru stöðurnar sem allar aðrar jógastöður byggja á. Við munum fara yfir aðlaganir og hvernig staðan lítur út í þínum líkama og hvernig henni er ekki ætlað að líta eins út í öllum líkömum.
Nemendur taka miklum framförum á námskeiðum hjá okkur eins og þessu og við leggjum til að þú mætir einnig í opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur til að æfa það sem þú lærir á námskeiðinu.
Þeir sem skrá sig og eru ekki korthafar fá aðgang að stundatöflunni okkar í heilan mánuð frá og með 2. apríl til að mæta í opna tíma.
Verð: 34.900 kr* Skráning: HÉR
Korthafar: 24.900 kr. (skráning í Glofox appinu og verð með afslætti kemur sjálfkrafa fram)
Tímasetning: Þriðjudaga & fimmtudaga kl. 19:30 - 20:45
Skráning í Glofox appinu eða hér
Fyrirspurnir berast info@icelandpoweryoga.is
Kennari: Sturlaugur Halldórsson 200 RYT, Baptiste Yoga kennari
Comments