top of page

Jóga að lífstíl á 40 dögum

  • Writer: icelandpoweryoga
    icelandpoweryoga
  • Dec 20, 2025
  • 3 min read

Updated: 5 days ago

Uppbyggjandi og umbreytandi ferðalag fyrir líkama, huga og sál.

Námskeiðið er í grunninn þróað af hinum þekkta jógakennara Baron Baptiste og leiðir þig í gegnum 40 daga ferli þar sem þú færð nýtt tækifæri vikulega til að skapa nýjar venjur, dýpri meðvitund og sterkari tengingu við sjálfa(n) þig.


Á námskeiðinu styðjum við þig í að:

  • stunda daglega jógaiðkun (asana)

  • byggja upp daglega hugleiðslu

  • vinna með sjálfsskoðun og ásetning

  • skoða lífsstílinn þinn og mataræði með opnum og heilbrigðum hætti

Markmiðið er ekki fullkomnun – heldur heilun, heiðarleiki og breytingar sem endast.


Hvernig fer námskeiðið fram?

  • Aðalfundir:

    📍 Iceland Power Yoga, Holtasmára 1

    🗓 Þriðjudagar kl. 19:30–21:00 (alls 6 skipti)


  • Aukafundir á ZOOM:

    💻 Fimmtudagar kl. 19:30–20:15

    Þessir fundir eru ætlaðir til að styðja þátttakendur á milli aðalfunda – með tengingu, innblæstri og rými fyrir spurningar.


  • Leiðbeinendur:

    Inga Hrönn Kristjánsdóttir leiðir námskeiðið

    Guðrún Selma aðstoðar


Ávaxtafasta – vika 3

Í 3. viku námskeiðsins er 3 daga ávaxtafasta sem er skilvirk leið til að hreinsa og endurstilla allt kerfið þitt og auka meðvitund um næringu og matarvenjur.

✨ Nýtt í þetta sinn:Í boði verður að kaupa tilbúinn matarpakka, sóttur daglega í 3 daga, fyrir þá sem vilja einfalda sér leið í gegnum ávaxtaföstuna.👉 Við kynnum þetta nánar á fyrsta fundinum þann 20. janúar.

Ef ávaxtafasta hentar ekki þér, geturðu valið þína eigin 3 daga áskorun (t.d. án mjólkurvara, án sykurs, safakúr o.fl.).

Fyrir hverja er námskeiðið?

  • Fyrir bæði byrjendur og lengra komna (fólk tekur endurtekið þátt til að uppfæra lífstílinn sinn)

  • Engin reynsla af jóga eða hugleiðslu nauðsynleg

  • Byrjað er rólega (20 mín. iðkun) og byggt smám saman upp

  • Þú færð daglega pósta m.a. með leiddum hugleiðslum og jógatímum þér til stuðnings


Af hverju 40 dagar?

Í mörgum hefðum táknar talan 40 umbreytingu og nýtt upphaf.Samkvæmt rannsóknum og kenningum (m.a. úr Kabbalah) tekur það um 40 daga að festa nýjar venjur í sessi.

Eins og Baron Baptiste segir: „Á 40 dögum geturðu skipt yfir í alveg nýjan lífsstíl.“


Hagnýtar upplýsingar

  • Námskeiðið byggir á bókinni 40 Days to Personal Revolution. Hún fylgir ekki með – en fæst hjá okkur. Hún fæst einnig á rafrænu formi á Amazon og hljóðbókaformi.

  • Fullur aðgangur að tímum hjá Iceland Power Yoga fylgir fyrir þá sem ekki eru meðlimir

  • Lagt er upp með að æfa jóga 6 daga á viku og hvíla 1 dag. Hugleitt er daglega. Mælt er með að þú mætir í tíma, en möguleiki er að gera jógaæfingar heima þar sem þáttakendur fá aðgang að upptökum.

  • Mikilvægt er að þú mætir á alla fundina. Ef eitthvað kemur upp, hafðu samband við okkur– og við gerum okkar besta í að styðja þig.


Þetta námskeið er boð um að hægja á, staldra við og velja meðvitað hvernig þú vilt lifa lífinu. Ekki bara í 40 daga – heldur til framtíðar.


Verð: 39.900 kr. (Innifalið: ótakmarkaður aðgangur að tímum í 40 daga)

Skráning HÉR


Korthafar verð: 26.900 kr. - Skráning í Glofox


Skilmálar: Þegar þú hefur greitt fyrir námskeið hefur þú 14 daga til að til að hætta við og fá námskeiðið endurgreitt að fullu (sbr. 1. mgr. 8 gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga). Beiðni um endurgreiðslu þarf að senda á netfangið info@icelandpoweryoga.is amk. 14 dögum áður en námskeiðið hefst. Sé gengið frá kaupum á námskeiði sem hefst innan 14 daga átt þú ekki rétt á endurgreiðslu eða tilfærslu á annað námskeið (sbr. 10. gr. laga nr. 46/2000). 

Falli námskeið niður er þátttakendum sem greitt hafa fyrir námskeið boðið að færa skráningu á annað námskeið, eiga inneign eða fá fulla endurgreiðslu.


 
 
 

Comments


©2018 by Iceland Power Yoga. Proudly created with Wix.com

bottom of page