Mandala de Masca, Tenerife | 1.–6. apríl 2027
Updated: Nov 14

Komdu með Ingu og Iceland Power Yoga samfélaginu í sex daga jógaferð í einstaka fjallaþorpinu Masca á Tenerife. Við ætlum að dvelja á Mandala de Masca setrinu, í kyrrlátu umhverfi í fjöllunum á Tenerife. Við verðum eini hópurinn á setrinu á meðan á dvölinni stendur, sem skapar rólegt og persónulegt rými fyrir hópinn okkar—til að hægja á ferðinni, hreyfa sig, borða nærandi mat, hvíla og tengjast sjálfum sér og öðrum.
Þetta er sex daga retreat með jóga, hugleiðslu, öndunaræfingum, sjálfsskoðun, vinnustofum og gönguferð um Masca-svæðið. Innifalið eru: allar vinnustofur, gisting, plöntumiðaðar máltíðir og akstur til og frá Tenerife South-flugvelli. Setrið bíður upp á rými til slökunar inni á milli og hægt er að panta sér nudd á staðnum.

Staðsetning

Mandala de Masca er staðsett í dramatískum Teno-fjöllunum á norðvesturhluta Tenerife.
Brött gil, hrjúfir tindar og grónar fjallshlíðar umlykja þorpið og skapa einstakt og friðsælt umhverfi fyrir jóga og útiveru. Við dveljum í Mandala de Masca setrinu alla ferðina.
Hreint fæði & Næring

Maturinn er eitt af því sem stendur hvað mest upp úr á Mandala de Masca. Í þessa sex daga gefum við líkamanum hvíld frá hversdagslegum matarvenjum og nærum hann í staðinn með einföldum, hreinum og nærandi mat.

Nærandi, plöntumiðað slow-food fæði
Lífrænt og staðbundið hráefni
3 máltíðir á dag og hollir millibitar
Heimagerðir safar og drykkir
Einn kaffibolli á morgnana ☕️
Ljúffengt náttúrulegt te í boði allan daginn
Ekkert áfengi
Þetta snýst ekki um að svelta eða neita sér — heldur að einfalda, næra og gefa líkamanum hvíld. Maturinn verður ríkulegur, nærandi og nóg af honum.
Einstakt matreiðsluteymi Mandala sérhæfir sig í hollum, nærandi og plöntumiðuðum mat.
Þú þarft bara að mæta að borðinu og njóta.
Dagskrá

Dagarnir mynda eina samfellda vegferð þar sem jóga, hugleiðsla, öndun og sjálfsskoðun tengjast
frá einum degi til annars. Við iðkum saman á morgnana áður en við snæðum morgunmat og gefum okkur tíma til að kynnast og eiga góð samtöl. Samfélagið er hluti af upplifuninni, en við fyllum ekki hvert augnablik af dagskrá.
Eftir morgunmat getur verið vinnustofa eða frjáls tími. Við borðum saman hádegismat og síðdegið
er opið fyrir hvíld, gönguferðir, nudd eða stund við sundlaugina. Fyrir kvöldmat komum við saman í vinnustofu eða jógatíma og eigum síðan notalega kvöldstund saman. Klukkan 22 hefst "Noble Silence".
Þú færð líka nægt rými til að vera ein eða einn, lesa, skrifa, sofa, hugsa eða einfaldlega njóta augnabliksins. Það rými er líka hluti af ferðinni.

Hvað er innifalið?
Gisting í fimm nætur á Mandala de Masca
Plöntumiðaðar jógamáltíðir alla dvölina
Allir jógatímar og dagskrárliðir
Power Yoga
Yin-jóga
hugleiðsla
öndunaræfingar
jógavinnustofur
Leiðsögn í gönguferð um Masca-svæðið
Vinnustofa í gerð mala-hálsmena matreiðsluvinnustofa
Akstur til og frá Tenerife South-flugvelli (TFS)
Tími til að hvílast, njóta samveru og kyrrðarinnar

Ekki innifalið
Flug til og frá Tenerife
Ferðatrygging
Persónuleg útgjöld og valfrjáls þjónusta eða athafnir sem ekki eru taldar upp sem innifaldar eins og nudd.
Herbergi og verðlagning
Þriggja manna herbergi eða íbúð, deilt með öðrum: 324.900 ISK á mann
Tveggja manna herbergi með sérbaðherbergi, deilt með öðrum: 344.900 ISK á mann
Einstaklingsherbergi með sérbaðherbergi: 444.900 ISK

Óafturkræft staðfestingargjald að upphæð 100.000 ISK tryggir þér pláss og gengur upp í heildarverðið.
Eftirstöðvar greiðast fyrir 1. febrúar 2027. Hafðu samband við Ingu ef þú vilt ræða greiðsludreifingu eða herbergjaskipan. Framboð herbergja getur breyst, svo endilega kannaðu stöðuna áður en þú bókar flug.
Að komast til Tenerife
Flugfargjöld eru ekki innifalin í verði ferðarinnar. Icelandair býður beint flug frá Keflavík til Tenerife South-flugvallar (TFS). Akstur hópsins milli flugvallarins og Mandala de Masca á komudegi og brottfarardegi hópsins er innifalinn.
Sumir hafa kosið að lengja ferðina með því að koma fyrr til Tenerife eða dvelja áfram eftir að samveru okkar í Masca lýkur. Þá bóka þeir flug í samræmi við eigin ferðaáætlun. Nánari upplýsingar um aksturstíma og ferðatilhögun verða sendar eftir skráningu.

Skráning
Til að skrá þig í ferðina: Fylltu út skráningarformið
Fyrirspurnir: inga@icelandpoweryoga.is
Afpöntun og endurgreiðsla
Staðfestingargjald að upphæð 100.000 kr. og aðrar greiðslur eru almennt óafturkræfar. Afbókun þarf að berast skriflega á inga@icelandpoweryoga.is. Hægt er að framselja bókun til vinar eða fjölskyldumeðlims til og með 21. janúar 2027. Ef afbókun berst frá 1. til 21. janúar þarf að tilkynna framsalið innan sjö daga frá afbókuninni.
Undantekningar vegna ferðatakmarkana stjórnvalda og önnur skilyrði koma fram í fullum skilmálum. Við mælum eindregið með ferðatryggingu.
Smelltu hér að neðan til að hlaða niður öllum skilmálum um afbókun og endurgreiðslu (PDF).
)_edited.png)






Comments